Dagur Norðurlanda 2024: Norðurlönd framtíðarinnar: Aukið samstarf í þágu friðar og öryggis

21.03.24 | Viðburður
Photographer
norden.org
Í tilefni dags Norðurlanda, sem markar undirritun Helsingforssáttmálans árið 1962, blásum við til málþings um framtíð norræns samstarfs í breyttu geópólitísku landslagi.

Upplýsingar

Dates
21.03.2024
Time
16:30 - 18:00
Location

The Nordic house in Reykjavík
SÆMUNDARGATA 11
101 REYKJAVÍK
Ísland

Type
Námstefna

Í heimi sem einkennist af auknum átökum, skautun og fordómum í garð minnihlutahópa, standa Norðurlöndin nú á mikilvægum krossgötum. Þar sem norrænt samstarf stendur frammi fyrir nýjum áskorunum, en einnig tækifærum, hefur Norðurlandaráð ákveðið að hefja endurskoðun á Helsinki-sáttmálanum – sem oft er kallaður norræna stjórnarskráin. Meðal þess sem verið er að meta er hvort norrænt samstarf eigi einnig að taka til öryggis og viðbúnaðar.

 

Hvaða áhrif gæti þetta víðtæka endurmat á norrænu samstarfi haft för með sér? Hvernig geta Norðurlöndin saman staðið vörð um frið, mannréttindi og öryggi? Hvaða hlutverki gegnir aukin samvinna við að tryggja stöðugleika á umbrotatímum?

 

Viðburðurinn fer fram á ensku. Léttar veitingar verða í boði þegar dagskrá lýkur kl. 18.00.

Pallborð:

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði

Veslemøy Hedvig Østrem, ritstjóri Altinget.no

Orri Páll Jóhannsson, , þingmaður og meðlimur í Norðurlandaráði

Pär Ahlberger, sendiherra Svíþjóðar

Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins

 

Fundarstjóri:

Pia Hansson, Forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

 

Skipuleggjendur: Norrænt samstarf og Norræna félagið

Horfðu á beina útsendingu