Handhafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023
Rökstuðningur dómnefndar
Verðlaunahafinn í ár hefur skapað myndabók fulla af sjónrænum sprengikrafti um áhrifin sem villt og óhamin náttúra hefur á fólk.
Mynd og texti fléttast listilega saman í fjöruga og sprenghlægilega sögu um sundurleitan hóp ferðamanna við gosstöðvar. Frásögnin iðar af lífsþrótti og bæði fangar og skopast að hrifningu okkar á öfgafullum náttúrufyrirbærum. En hún dregur einnig fram hvernig mótsagnakenndar tilfinningar vakna bæði þegar jörð klofnar, hraun flæðir og ný fjöll verða til og þegar við stöndum frammi fyrir hversdagsógnum á borð við lúsafaraldur eða sjáum nánasta umhverfi okkar yfirfyllast af ferðamönnum. Frásögnin er þannig þrungin spennu sem er sprottin úr samspilinu milli hins ægistóra og hins agnarsmáa.
Myndirnar í bókinni eru sneisafullar af forvitnilegum og fyndnum smáatriðum sem hrífa hinn unga lesanda með sér. Litanotkunin er hnitmiðuð og merkingarhlaðin og endurspeglar viðfangsefnið á markvissan hátt. Biksvart gjallið birtist lesandanum í japönsku bleki og glóandi hraunfljótið kallast á við heita litina í forstofudregli. Við hliðina á þessu marglita sjónarspili verða fölar manneskjurnar eins og áminning um að við erum öll, rétt eins og túristarnir, bara hér í heimsókn. Er náttúran eingöngu til okkur til skemmtunar eða ættum við að taka meiri ábyrgð á samskiptum okkar við hana?
Eldgos kveikir von um að við getum fundið leið til að lifa í sátt við náttúruna.