Ungt fólk – framtíðin á vinnumarkaði

03.09.21 | Viðburður
shareable: unga och arbetsmarknad
Ljósmyndari
Norden.org
Föstudaginn 3. september kl. 13.15–14.45 í Grósku og beinu vefstreymi

Upplýsingar

Dagsetning
03.09.2021
Tími
13:15 - 14:45
Staðsetning

Nordens hus
Reykjavik
Ísland

Gerð
Online

Atvinnumál ungmenna verða rædd er Nordjobb, í samvinnu við Norræna félagið og Norræna húsið, efnir til málþings á Fundi fólksins þann 3. september kl. 13.15–14.45 í Grósku. Fjölbreyttur hópur aðila vinnumarkaðarins koma saman og fjalla um atvinnumál ungmenna, námsmanna og hinn samnorræna vinnumarkað. Viðburðurinn verður einnig í beinu streymi á Facebook.

Þátttakendur:

  • Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra setur fundinn
  • Morten Fabricius Meyer, verkefnisstjóri Nordisk Jobløsning hjá FNF
  • Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður 
  • Jónína Ólafsdóttir Kárdal, formaður Félags náms- og starfsráðgjafa
  • Gundega Jaunlinina, Alþýðusamband Íslands
  • Derek T. Allen, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta
  • Árni Grétar Finnsson, Samtökum atvinnulífsins
  • Hannes Björn Hafsteinsson, Nordjobb Íslandi

Á málþinginu verður m.a. fjallað um Nordjobb. Nordjobb er norrænt vinnumarkaðsverkefni sem starfrækt hefur verið frá 1985. Tilgangur Nordjobb er að auka hreyfanleika á norræna vinnumarkaðinum með því að miðla störfum, upplýsingum, þekkingu og fræðslu til ungmenna á aldrinum 18-30 ára.

Viðburðurinn er hluti af dagskrá Fundar fólksins sem fer fram 3. og 4. september.

Bein útsending