Evrópa á umbrotatímum þarf á öflugum Norðurlöndum að halda
Áætlunin, sem leggur grunninn að samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á árinu 2017, hefur þrjú megináherslusvið:
- Straumhvörf á Norðurlöndum
Við munum auka samkeppnishæfni Norðurlanda á tímum umskipta til græns samfélags þar sem stefnt er að því að halda losun í lágmarki, og efla aðlögun og samstarf í heilbrigðismálum. - Norðurlönd í Evrópu
Við munum efla samstarf okkar um Evrópumál. Öflug rödd Norðurlanda í Evrópuumræðunni er ekki aðeins norrænum þjóðum í hag heldur álfunni í heild sinni. - Norðurlönd í umheiminum
Við munum auka stefnumarkandi samstarf Norðurlanda á sviði utanríkismála.
Þá eru samlegðaráhrif af norrænu samstarfi og samstarfi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna Noregi einnig hugleikin.
Norðurlönd þurfa á öflugri Evrópu að halda, og Evrópa á umbrotatímum þarf á öflugum og afdráttarlausum Norðurlöndum að halda
Elisabeth Vik Aspaker, norrænn samstarfsráðherra og ráðherra EES- og ESB-mála í Noregi, var einnig viðstödd þegar formennskuáætlun Noregs var kynnt. Sem norrænn samstarfsráðherra mun hún hafa yfirumsjón með starfsemi tengdri formennsku Norðmanna.
„Ég hlakka til þess að takast á við formennskuna á árinu 2017. Norðurlönd þurfa á öflugri Evrópu að halda, og Evrópa á umbrotatímum þarf á öflugum og afdráttarlausum Norðurlöndum að halda,“ segir Vik Aspaker.
Meira um formennsku í Norrænu ráðherranefndinni
Norræna ráðherranefndin er opinber samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Norrænu ríkin fimm skiptast á formennsku í Norrænu ráðherranefndinni, eitt ár í senn. Það land sem gegnir formennsku hverju sinni semur áætlun sem verður leiðbeinandi fyrir norrænt samstarf á formennskuárinu.
Finnland hefur gegnt formennsku 2016 og Noregur tekur við þann 1. janúar 2017. Óformlegt samstarf fer einnig fram utan ramma Norrænu ráðherranefndarinnar, meðal annars um utanríkis- og öryggismál, og hefur formennskulandið einnig umsjón með því.