Pólitík í 140 stafabilum
„Samfélagsmiðlar snúast um gagnsæi og skoðanaskipti,“ segir Silja Borgarsdóttir Sandelin, fulltrúi í Norðurlandaráði æskunnar. „Þess vegna á maður ekki bara að tala sjálfur heldur líka hlusta á það sem aðrir hafa að segja. Með því að hlusta og skiptast á skoðunum verðum við sýnilegri en ella á vettvangi norræns samstarfs.“
Jakob Esmann, forseti Norðurlandaráðs æskunnar, er iðinn við að nota samfélagsmiðla til að vekja athygli á norrænum málefnum. Esmann telur að norrænir stjórnmálamenn beri mikla ábyrgð á að vekja áhuga á norrænum málefnum heima fyrir.
„Við vitum að það er erfitt að fá fréttir um norræn málefni á forsíður dagblaðanna. En ef fjölmiðlarnir leggja ekki áherslu á norrænt efni verðum við að gera það. Saman getum við stofnað til norrænnar umræðu – til dæmis á samfélagsmiðlum. Ef við, stjórnmálamennirnir í norrænu samstarfi, setjum norræn málefni ekki á dagskrá, hver ætti þá að gera það?“
Gárur á vatnsfleti
Mest ber á pólitík í norrænu samstarfi á þingum Norðurlandaráðs. Einkum iðar samfélagsmiðillinn Twitter af lífi undir kassamerkjunum #nrsession og #unginorden. Silja Borgarsdóttir Sandelin og Jakob Esmann taka bæði þátt í umræðunni á Twitter þegar norrænn þingheimur safnast saman.
„Það eru takmörk fyrir því hve margir komast fyrir í þingsalnum þegar þing Norðurlandaráðs stendur yfir, en á Twitter er engin mælendaskrá. Við fjöllum um mikilvæg málefni sem snerta Norðurlandabúa allt frá Umeå til Reykjavíkur, og á Twitter breiðist umræðan út eins og gárur á vatnsfleti. Ummælaþráðurinn á Twitter miðlar þinginu til borgaranna og gefur þeim kost á að taka þátt,“ bendir Silja á.
Sýnileiki krefst hugrekkis
Aukið gagnsæi í norrænu samstarfi í framtíðinni er ofarlega á óskalista Jakobs Esmann. Hann bendir á að fólk getur sjálft tekið þátt á samfélagsmiðlum – á öðrum forsendum en þegar dagblaði er flett eða kveikt á sjónvarpstækinu.
„Við eigum að vera hugrökk og þora að vekja athygli á því að tímafrekir verkferlar, skiptar skoðanir og ólíkar fylkingar fyrirfinnast innan norræns samstarfs. Það má vera að það sé barnalegt að hugsa þannig, en mér finnst gagnsæi vera mikilvægur þáttur í lýðræði. Ákvarðanir um norræn málefni snerta alla á Norðurlöndum, svo því ekki að opna umræðuna og leyfa fólki að taka þátt?“
Norrænt samstarf á samfélagsmiðlum
Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin taka virkan þátt á Facebook, Twitter, LinkedIn og Instagram. Fylgist með og takið þátt í umræðunni!
Facebook
Facebook.com/nordensk (danska, norska og sænska)
Facebook.com/nordenis (íslenska)
Facebook.com/nordenen (enska)
Facebook.com/nrlitteraturpris: Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Facebook.com/sdnordic: Sustainable development the Nordic way
Twitter.com/nordensk (danska, norska og sænska)
Twitter.com/nordenen (enska)
Twitter.com/nordenis (íslenska)
LinkedIn
Follow company: The Nordic Council of Ministers and The Nordic Council
Instagram: Fylgist með Nordicways – norrænu samstarfi í myndum