Skattavandi norskra lífeyrisþega til meðferðar hjá ríkisstjórnunum
Tillagan kom fyrir Norrænu ráðherranefndina í kjölfar þess að norskum lífeyrisþegum, sem búsettir voru í Svíþjóð, voru veittar rangar upplýsingar eftir að breytingar voru gerðar á tvísköttunarsamningnum árið 2008. Málið komst á dagskrá borgara- og neytendanefndar Norðurlandaráðs þann 24. ágúst 2012, en telst nú afgreitt af hálfu nefndarinnar.
„Við í borgara- og neytendanefnd fögnum því að tillaga okkar um endurskoðun og nánari útskýringu á ábyrgð hlutaðeigandi yfirvalda í þessu máli verði nú lögð fyrir ríkisstjórnirnar. Ennfremur förum við þess á leit við ríkisstjórnir Noregs og Svíþjóðar að skattaálögur þeirra lífeyrisþega, sem hafa hlotið óréttláta meðferð vegna þessa, verði leiðréttar. Það er allra hagur að hreinsað verði til í þessu máli í eitt skipti fyrir öll,“ segir Knut Storberget (Ap) frá Noregi, talsmaður nefndarinnar.
Norðurlandaráð beinir nú eftirfarandi tilmælum til Norrænu ráðherranefndarinnar:
- Að hún efni til endurskoðunar á „Samningi milli Norðurlanda til að komast hjá tvísköttun að því er varðar skatta á tekjur og eignir“ í því skyni að skýra orðalag í reglunum.
- Að hún hefji rannsókn á því hvernig hægt er að tryggja að skattstjóraembættin og önnur yfirvöld sem málið varðar túlki tvísköttunarsamninginn á sama hátt og veiti almenningi réttar og ótvíræðar upplýsingar um reglurnar.
- Að hvetja skattayfirvöld í Noregi og Svíþjóð til að fara yfir mál norskra lífeyrisþega í Svíþjóð í því skyni að afhjúpa hvort þeim hafi verið veittar rangar upplýsingar og leiðrétta skattaálögur þeirra í samræmi við útkomuna.