Kristján Þór Júlíusson (Svar på replik)
Information
Takk fyrir þetta. Samgöngur eru eyjasamfélögum mjög mikilvægar. Við leysum það tæpast með járnbrautum. Það sem ég á við er að þegar við erum að ræða bættar samgöngur innan Norðurlandanna vil ég leggja áherslu á hver sérstaða eyjasamfélaganna er. Við erum mjög háð því að flugsamgöngur séu í lagi. Við erum byrjuð að vinna að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í skipakosti landanna en við sjáum ekki fram á að það gerist strax í sambandi við flugsamgöngur. Ég bið þingfulltrúa að taka tillit til þeirrar sérstöðu sem smáríkin hafa þegar um er að ræða stórar lausnir í loftslagsmálum.
Skandinavisk oversættelse
Tak for det. Infrastrukturen er meget vigtig for øsamfund. Det klarer vi næppe med jernbaner alene. Det, jeg mener, er at når vi taler om en forbedret infrastruktur i Norden, så ønsker jeg at understrege øsamfundenes særstilling. Vi er meget afhængige af at flytrafikken fungerer. Vi er allerede i gang med at reducere udledningen af drivhusgasser fra landets skibsflåde, men vi ved ikke hvornår det samme kan ske i forbindelse med flytrafikken. Jeg vil bede parlamentarikerne om at tage højde for de særlige forhold, der gør sig gældende i små stater når det handler om overordnede klimaløsninger.