Ungmenni spreyta sig á jafnrétti í stuttmyndakeppni
Jafnrétti er eitt af þeim sameiginlegu gildum sem norrænt samstarf grundvallast á. Í 40 ár hefur verið unnið að því að konur og karlar og strákar og stelpur hafi sömu tækifæri og réttindi. En hvað finnst næstu kynslóð um jafnrétti á Norðurlöndum? Hvað merkir jafnrétti í þeirra huga og hvernig telja þau að við getum orðið ennþá betri á þessu sviði í framtíðinni?
Stuttmyndasamkeppni um jafnréttismál
Á þessu vori efnir Norræna ráðherranefndin til stuttmyndasamkeppni fyrir ungmenni á Norðurlöndum. Öllum á aldrinum 15 til 25 ára er heimilt að taka þátt og lýsa hugmyndum sínum um norrænt jafnrétti í allt að þriggja mínútna langri stuttmynd.
Þátttakendurnir geta til dæmis tekið upp myndina á snjallsíma eða spjaldtölvu og hlaðið henni upp á Facebook-síðu keppninnar. Hugmyndaauðgin vegur þyngra en tæknin við mat á myndunum. Hlaða þarf upp myndunum í síðasta lagi 3. júní kl. 10:00 að íslenskum tíma. Eftir það velur dómnefnd tíu myndir sem fara áfram í atkvæðagreiðslu á Facebook sem fer fram frá 4. til 10. júní. Úrslitin verða kynnt 10. júní. Fyrstu verðlaun eru 25 þúsund danskar krónur og önnur verðlaun 5 þúsund danskar krónur.
Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á Facebook-síðu hennar.