Nýr forseti Norðurlandaráðs æskunnar kjörinn
![Aldís Mjöll Geirsdóttir](/sites/default/files/styles/content_size_800/public/2020-10/IMG_4841%20%28002%29.jpg?itok=AMc29G5P)
Norðurlandaráð æskunnar þjófstartaði þingviku Norðurlandaráðs um helgina og kaus sér nýjan forseta fyrir næsta ár. Hin íslenska Aldís Mjöll Geirsdóttir varð fyrir valinu.
Að kjöri loknu sagði hinn nýi forseti: „Það er mér mikill heiður að vera treyst til að gegna stöðu forseta UNR. Staðan gerir mér kleift að berjast fyrir ungmenni á Norðurlöndum og verja réttindi þeirra og hagsmuni. UNR er ekki aðeins viðbót við norrænt samstarf, heldur öflugur drifkraftur og þátttakandi í samstarfinu. Ég ber miklar væntingar til þeirra áskorana og verkefna sem bíða mín og forsætisnefndarinnar á næsta ári.“
Ennfremur minnti Aldís Mjöll á nauðsyn þess að muna eftir unga fólkinu í tengslum við yfirstandandi heimsfaraldur og loftslagsvanda: „Við erum stödd í miðjum heimsfaraldri COVID-19 og einnig ríkir neyðarástand í loftslagsmálum. Nauðsynlegt er að gæta að því að unga fólkið gleymist ekki í aðgerðum norrænu ríkisstjórnanna.“
Það er mér mikill heiður að vera treyst til að gegna stöðu forseta UNR. Staðan gerir mér kleift að berjast fyrir ungmenni á Norðurlöndum og verja réttindi þeirra og hagsmuni. UNR er ekki aðeins viðbót við norrænt samstarf, heldur öflugur drifkraftur og þátttakandi í samstarfinu. Ég ber miklar væntingar til þeirra áskorana og verkefna sem bíða mín og forsætisnefndarinnar á næsta ári.
Auk forsetakjörsins voru fjölbreytt pólitísk málefni á dagskrá æskulýðsþingsins. Meðal umræðuefna voru stjórnsýsluhindranir í tengslum við yfirstandandi heimsfaraldur, loftslagmál og sjálfbærni auk æskulýðssamstarfs á norðurslóðum og í Eystrasaltslöndum.
Með kjöri Aldísar Mjallar Geirsdóttur til forseta markar þing Norðurlandaráðs æskunnar endalok forsetatíðar hins finnska Nicholasar Kujala. Hér að neðan má nálgast viðtal við Nicholas Kujala síðan í maí, þar sem hinn fráfarandi forseti UNR ræddi þörfina á auknu norrænu samstarfi á erfiðleikatímum.
Norðurlandaráð æskunnar er vettvangur stjórnmálasamtaka ungs fólks á Norðurlöndum, þar sem ungmenni sem virk eru í stjórnmálum starfa saman að því að setja mark sitt á viðfangsefni norræns samstarfs.