STREYMI: Er Ísland hinsegin útópía? Misræmi lagalegrar stöðu og félagslegs samþykkis á Íslandi
Upplýsingar
Nordens Hus i Reykjavík
Sæmundargata 11
Ísland
Samtökin ‘78 og Norræna húsið bjóða þér á fund um lagalega stöðu hinsegin fólks á Íslandi sem fer fram í beinu streymi frá Norræna húsinu 13. október, sjá hlekk á streymið efst á þessari síðu.
Á fundinum verður farið yfir lagaleg réttindi hinsegin fólks á Íslandi frá mismunandi sjónarhornum. Markmið fundarins er að varpa ljósi á hindranir og áskoranir sem tengjast réttindum hinsegin fólks á Íslandi og leita í sameiningu lausna til að tryggja velferð og öryggi hinsegin fólks á Íslandi.
Fundurinn er hluti af fundaröð Norrænu ráðherranefndarinnar sem fer fram á öllum Norðurlöndunum á þessu ári. Fundaröðin spratt af samstarfi sem norrænu jafnréttisráðherrarnir hófu árið 2019 með það að markmiði að efla vernd og bæta líf hinsegin fólks á öllum Norðurlöndunum. Niðurstöðum fundarins verður komið áleiðis til norrænu jafnréttisráðherranna.
Dagskrá:
17.00 - Opnunarorð
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
17.05 – Bakgrunnur og innblástur
Gisle Agledahl, blaðamaður frá Noregi
17.15 - Lagaleg staða hinsegin fólks á Íslandi
Katrín Oddsdóttir, mannréttindalögfræðingur
17.30 – Fjárfestum í hinsegin réttindum
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna ‘78
17.40 – Að alast upp intersex
Bríet Finnsdóttir, intersex aðgerðarsinni
17.50 – Hatursglæpir og hatursorðræða gegn hinsegin fólki á Íslandi
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjasérfræðingur og transaðgerðarsinni
18.00 - Umsókn um hæli í lífshættu
Angel P'ojara, mannréttindaaðgerðarsinni og fyrrum hælisleitandi
18.10 - Umræður
18.30 – Samantekt
Fundarstjóri: Felix Bergsson, blaðamaður
Fundurinn fer fram á ensku.
Spurningum um aðgengi fjölmiðla og öðrum spurningum má beina til: