Dagur Kári, Baltasar Kormákur og Agnes Johansen hlutu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Fúsa

27.10.15 | Fréttir
Vinder af Nordisk Råds filmpris 2015
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org
Leikstjórinn og handritshöfundurinn Dagur Kári og framleiðendurnir Baltasar Kormákur og Agnes Johansen hlutu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Fúsa á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Reykjavík.

Verðlaunahafi síðasta árs, Benedikt Erlingsson, afhenti þeim verðlaunagripinn „Nordlys“ og verðlaunaféð, 350 þúsund danskar krónur.

Rökstuðningur

Myndin er fáguð, stílhrein og full af myndrænni hugmyndaauðgi og fjallar um mikilvægi þess að varðveita gæsku sína og sakleysi í óárennilegum heimi.

Fúsi eftir Dag Kára er grípandi og listilega upp byggð kvikmynd sem bregður upp trúverðugri mynd af blíðum risa og hnitmiðuðum lýsingum á konunum sem standa honum næst.