Norrænt samstarf um þróun skapandi kennsluaðferða

03.07.14 | Fréttir
Biophilia er kennslutæki sem byggir á verkum Bjarkar Guðmundsdóttur. Þetta er umfangsmikið þverfaglegt kennsluverkefni þar sem sköpunargáfa er í fyrirrúmi. Auk Bjarkar taka ýmsir þekktir norrænir listamenn og vísindamenn þátt í verkefninu.

Biophilia er viðamikið kennsluverkefni sem byggir á víðtækri þátttöku fræðimanna, vísindamanna, listamanna, kennara og nemenda á öllum skólastigum. Það byggist á því að nota sköpun sem menntunar- og rannsóknaraðferð þar sem náttúruvísindi, tónlist og tækni eru tengd saman á nýstárlegan hátt

Árið 2014 fer Ísland með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og Biophilia er eitt af helstu verkefnum formennskutíðarinnar.

Tónvísindasmiðjur um allan heim

Verkefnið var þróað af Björk Guðmundsdóttur, Reykjavíkurborg og Háskóla Íslands í tengslum við útkomu plötu hennar Biophilia árið 2011. Þá voru haldnar tónvísindasmiðjur fyrir börn samhliða tónleikum Bjarkar í Hörpu, en þær hafa síðan verið reyndar víða um heim, svo sem í New York, Buenos Aires, Ósló og Tókíó.

Í tilefni af formennskuárinu 2014 óskuðu íslensk stjórnvöld eftir samstarfi við hin Norðurlöndin um frekari þróun Biophiliu-kennsluverkefnisins. Staðbundin samstarfsnet verða mynduð í öllum norrænu löndunum, þar með talið á Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi.

Norrænir lista- og vísindamenn í fremstu röð

Mikilvægur áfangi í samstarfinu náðist í maí sl. þegar hópur norrænna sérfræðinga með vísindamönnum, listamönnum, fræðimönnum og kennurum hittist á Íslandi til þess að skerpa á og betrumbæta verkefnið auk þess að finna nýjar og frumlegar leiðir og hugmyndir sem nýta má í kennslunni.

Í hópnum eru Sunleif Rasmussen, eitt helsta tónskáld Færeyja; Anja Andersen, stjarneðlisfræðingur hjá Dark Cosmology Centre við Niels Bohr-stofnunina í Danmörku; Pipaluk Jørgensen, leikskáld og leikstjóri frá Grænlandi; Cecilia Björck, doktor í heimspeki tónlistarmenntunar við Háskólann í Gautaborg; Esko Valtaoja, rithöfundur og prófessor í stjörnufræði við Háskólann í Turku í Finnlandi; Alex Strömme prófessor í vísindamenntun við Háskólann í Þrándheimi; Guðrún Geirsdóttir, stjórnarformaður kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands og prófessor í menntunarfræðum, ásamt Björk Guðmundsdóttur.

Hugmyndir og vinna þessa hóps verður undirstaða Biophiliu-kennsluverkefnisins. Verkefnið mun svo þróast áfram í samstarfi við hvert svæði, þar sem reynt verður að taka mið af áherslum og aðstæðum á hverjum stað.

Markmiðið er nýsköpun og umbreyting kennsluhátta

Biophilia-kennsluverkefnið stendur yfir í þrjú ár. Undirbúningur stendur yfir árið 2014, það verður framkvæmt árið 2015 og eftirfylgni og mat fer fram árið 2016.

Markmiðið með norræna samstarfinu er að:

  • efla nýsköpun í skólastarfi með því að þróa kennsluaðferðir sem sameina þekkingu, sköpun og tækni,
  • umbreyta hefðbundnum kennsluháttum með þverfaglegri nálgun, þvert á aldurshópa, kennslugreinar og fagsvið,
  • þróa staðbundin samstarfsnet í þátttökulöndunum sem tengjast á norrænum samstarfsvettvangi og þar sem unnið verður að því að efla norrænt notagildi,
  • þróa veflægan starfsvettvang fyrir norrænt samstarf , án landamæra og fyrir mismunandi faghópa, sem verður áfram til eftir að verkefninu lýkur.