9 verkefni tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2016
![De nominerede til Nordisk Råds miljøpris 2016](/sites/default/files/styles/content_size_800/public/images/De%2520nominerede%2520til%2520Nordisk%2520R%25C3%25A5ds%2520milj%25C3%25B8pris%25202016313417.jpeg?itok=6TF0g4NC)
Ljósmyndari
norden.org
Dómnefnd tilnefnir níu verkefni til umhverfisverðlaunanna á grundvelli tillagna sem borist hafa frá almenningi á Norðurlöndum.
Þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár er stafræn nýsköpun sem ýtir undir sjálfbæran lífsstíl. Verðlaunin hreppir norrænt fyrirtæki, samtök eða einstaklingur sem stuðlar að sjálfbærum lífsstíl og hvetur til hans með skapandi stafrænum lausnum.
Danmörk
- Energiakademiet: Hnattrænn stafrænn fundarstaður fyrir sjálfbæra staðbundna frumkvöðla
- Kemiluppen: Smáforrit sem auðveldar neytendum að forðast óæskileg efni í snyrtivörum
- Too Good To Go: Smáforrit sem gerir neytendum kleift að versla ódýr matvæli skömmu fyrir lokunartíma og sporna þannig gegn matarsóun
Finnland
- Aidon: Snjallir rafmagnsmælar – mikilvæg tækninýjung í endurnýjanlegu orkukerfi
- ENO netskolen: Hnattrænn námsvefur og samstarfsnet um sjálfbæra þróun
Ísland
- e1: Smáforrit sem tengir saman rafbílaeigendur og eigendur hleðslustöðva
- Strætó-appið: Með Strætó-appinu er hægt að kaupa farmiða og fylgjast með ferðum strætó
Noregur og Svíþjóð
- Sjømatguiden / Fiskguiden frá Alþjóðanátturuverndarsjóðnum: Með Sjømatguiden, leiðarvísi WWF, er auðvelt að velja sjálfbært fiskmeti og skelfisk
Svíþjóð
- Workaround: Deiliþjónusta til að auka nýtingu á skrifstofurýmum
Umhverfisverðlaunin verða afhent í 22. sinn við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn þann 1. nóvember 2016. Verðlaunahafinn hlýtur 350.000 danskar krónur.
Nánari upplýsingar um tilnefnd verkefni til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2016: