Hér eru tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024

28.06.24 | Fréttir
miljøpris 2024
Ljósmyndari
norden.org
Fyrsta sjálfbærnivottaða byggingarfélagið á Grænlandi, íbúðarhúsnæði með ofurlágu kolefnisspori, orkujákvæðar íbúðir, vistvæn samfélagsnálgun og dæmi um endurnýtingu efnis og þróun hefðbundinna byggingaraðferða og handverks. Alls eru tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024 átta og koma þær frá öllum norrænu löndunum.

Í ár snúast umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs um sjálfbæra byggingarstarfsemi og er sérstök áhersla lögð á aðlögunarhæfan, endurnýtandi og endurnýjandi arkítektúr.

Átta tilnefningar

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024:

Um þema ársins: Sjálfbær byggingarstarsfemi

Rekja má um 40 prósent allrar kolefnislosunar í heiminum til byggingarstarfsemi. Þetta leiðir til ósjálfbærni á tímum þegar þörf er á því að byggja meira. Í lýsingu sinni á þema ársins leggur verðlaunanefndin einkum áherslu á þau skilyrði sem við sköpum komandi kynslóðum.

Hér má lesa nánar um þema ársins.

Þema 2024: Sjálfbær byggingarstarfsemi

Í ár snúast umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs um sjálfbæra byggingarstarfsemi og er sérstök áhersla lögð á aðlögunarhæfan og endurnýtandi arkítektúr. Hægt var að senda inn tillögur að byggingum, innviðum, einstaklingum eða fyrirtækjum.

Íbúum heims heldur áfram að fjölga og samhliða því þarf að byggja nýtt íbúðarhúsnæði og aðrar byggingar sem krefjast æ meira landsvæðis og náttúruauðlinda. Í dag má rekja fjörutíu prósent allrar kolefnislosunar í heiminum til byggingarstarfsemi. Sú þróun er ekki sjálfbær. Til þess að geta tekist á við loftslagsbreytingar og stöðvað hnignun líffræðilegrar fjölbreytni um leið og við tryggjum komandi kynslóðum grunnskilyrði til lífs, svo sem aðgengi að vatni, matvælum og orku, verðum við að breyta því hvernig við byggjum, búum og lifum.

Á síðustu árum hafa margvíslegar leiðir verið farnar til þess að auka sjálfbærni á sviði samfélagsskipulags, arkítektúrs og byggingarstarfsemi með það fyrir augum að koma í veg fyrir ofnýtingu náttúruauðlinda og umhverfisspjöll. Í nýbyggingum er markið þó sjaldan sett hærra en að gera byggingarnar skárri. Í ljósi þess að farið er yfir þolmörk jarðar á mörgum sviðum duga slík markmið ekki til.

Ef við ætlum okkur að ná loftslags- og umhverfismarkmiðum heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og um leið stuðla að félags- og umhverfislegri sjálfbærni nægir ekki að reisa bara nýjar og umhverfisvænar byggingar. Það er ekki nóg að viðhalda ástandinu í umhverfismálum. Við þurfum líka að draga úr losun, endurnýta efni og nota endurnýjanlegar auðlindir. Grundvallarbreyting þarf að verða á nálgun okkar til þess að viðskiptalíkön og regluverk styðji við breytingarnar. Ýta þarf undir aðlögunarhæfan, endurnýtandi og endurnýjandi arkítektúr.

Endurnýtandi arkítektúr gengur út á að nýta byggingar sem fyrir eru með nýjum hætti til þess að aðlaga þær að nýjum þörfum í stað þess að rífa þær.

Endurnýjandi byggingar eru hannaðar með það fyrir augum að lágmarka neikvæð áhrif á vistkerfið og ná í heildina fram jákvæðum áhrifum á umhverfið. Í því felst að hannaðar eru byggingar þar sem ekki er aðeins notast við takmarkaðar auðlindir heldur er einnig hægt að endurnýta. Unnið er út frá virðiskeðju hringrásar strax frá upphafi. Litið er á byggingar sem hluta af stærra kerfi þar sem tilföng á borð við hreint vatn, orku og matvæli verða til.

Verðlaunin afhent í Reykjavík

Tilkynnt verður um vinningshafa umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024 í haust tengslum við þing Norðurlandaráðs í Reykjavík. Verðlaunahafinn hlýtur að launum verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur.

Um umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Frá árinu 1995 hafa umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs verið veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem öðrum til eftirbreytni hefur tekist að samþætta umhverfissjónarmið starfsemi sinni eða framtaki eða á annan hátt lyft grettistaki í þágu umhverfisverndar. Tilnefningarferlið er opið og geta allir því sent inn tillögur að tilnefningum.

Markmiðið með hinum fimm verðlaunum Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og umhverfissamstarfi og veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til lista og umhverfismála.