Tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024

20.08.24 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Sex norrænar kvikmyndir eru tilnefndar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024. Kvikmyndirnar sem tilnefndar eru verða kynntar á þriðjudagskvöld við opnun „New Nordic Films“ á norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesund í Noregi. Verðlaunamyndin verður kynnt þann 22. október og stendur keppnin á milli tveggja heimildarmynda og fjögurra leikinna mynda.

Frá árinu 2002 hafa kvikmyndaverðlaunin verið veitt kvikmyndum í fullri lengd sem eiga rætur í norrænni menningu og hafa mikið listrænt gildi.

 

Hér eru tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024:

DANMÖRK

FINNLAND

GRÆNLAND

ÍSLAND

NOREGUR

SVÍÞJÓÐ

 

Dómnefnd skipuð fulltrúum frá löndunum tilnefndi myndirnar sex.

Tilkynnt um verðlaunahafann 22. október

Tilkynnt verður um sigurvegara kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í sjónvarpsþætti sem Ríkissjónvarpið sendir út 22. október og sýndur verður í öllum norrænu löndunum. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Reykjavík í 44. viku ársins. 

Verðlaunaféð nemur 300 þúsundum danskra króna og skipta handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi upphæðinni á milli sín enda er kvikmyndagerð listgrein þar sem árangurinn verður til í nánu samstarfi þessara þriggja aðila.

Hér verður hægt að sjá bestu myndir Norðurlanda í haust

Í haust verða hinar sex tilnefndu myndir sýndar á eftirtöldum viðburðum víða um Norðurlönd:

  • Norska kvikmyndahátíðin í Haugesund, 20.–22. ágúst (filmfestivalen.no)
  • Oso Pix Film Festival, 29.–31. ágúst (oslopix.no)
  • Viðburði í Kaupmannahöfn, 12.–17. september 
  • Helsinki International Film Festival, 19.–29. september (hiff.fi)
  • Viðburði í Reykjavík, 9.–14. október 
  • Viðburði í Stokkhólmi, 17.–20. október 

Um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt norrænni kvikmynd með mikið listrænt gildi. Myndin þarf að hafa verið frumsýnd í kvikmyndahúsum á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2024 eða milli 1. júlí og 31. desember árið á undan. 

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 2002 og eru nú veitt árlega um leið og önnur verðlaun ráðsins fyrir bókmenntir, barna- og unglingabókmenntir, tónlist og starf að umhverfismálum. Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hefur umsjón með kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs.